
Triggerpunktar&Teygjur 16:30 - Fimmtud.
Triggerpunktar&Teygjur 16:30 - Fimmtud.
1x í viku Fimmtudagar - Bætt heilsa betra líf
Tímar þar sem unnið er markvisst að losa spennu í bandvef og vöðvum líkamans með mjúkum boltum, Yinyoga stöðum/teygjum og djúpöndun. Í hverjum tíma er unnið með ákveðið hreyfiflæði til að styrkja bak, auka hreyfanleika hryggjasúlunnar og bæta líkamsstöðu. Boltana notum við til að til að nudda á ákveðnum þrýstipunktum líkamans með þeim tilgangi að losa um festur, losa spennu í vöðvum, mýkja bandvef, auka blóðflæði og endurnæra sogæðakerfið. Þetta eru rólegir en krefjandi tímar fyrir alla sem sækjast eftir meiri liðleika, vilja létta á spennu í líkamanum, bæta öndun, auka súrefnisupptöku og ná góðri líkamlegri og andlegri slökun. Tímarnir hjálpar til við að: - Mýkja upp og auka blóðflæði til stífa vöðva - draga úr verkjum og minnka vöðvaspennu - Endurnæra sogæðakerfið - auka hreyfifærni, hreyfanleika og liðleika - bæta líkamsstöðu - undirbúa líkamann fyrir átök - draga úr streitu og flýta fyrir endurheimt Triggerpunktar hentar vel fyrir alla þá sem eru með eymsli og verki í vöðvum, vöðvabólgu, gigt, stirðleika í liðamótum, lélega hreyfifærni, sofa illa og eru að glíma við streitu.
Dagsetningar á námskeiði
Hafa samband
bandvefslosun@gmail.com
