top of page

Tónheilun með kristalskálum í Reykjavík

Þessi þjónusta er ekki lengur í boði

Dásamleg hljóðheilun fyrir alla þá sem sækjast eftir endurheimt á líkama og sál.

4.000 íslenskar krónur
Bíldshöfði 16, 2. hæð - Gengið inn að aftan

Hljóðheilun er einstaklega góð fyrir þá sem vilja ná djúpri slökun í kyrrð og ró. Hljóðheilun styrkir taugakerfið, hefur góð áhrif á blóðrásina og bætir svefn. Tíminn byrjar á öndunaræfingum og stuttri hugleiðslu til að kyrra hugann og ná góðri slökun. Í tímanum er notast við Kristal söngskálar, regnstaf og wind chime. Tónarnir eru róandi og hjálpa þér að ná djúpslökun. Tími í tónheilun fer þannig fram að þú liggur á þykkri jógadýnu, með teppi og púða. (Það er allt á staðnum.) Best er að vera í þægilegum fötum, sem þrengja ekki að, og sokkum, til að vera nógu hlýtt.


Dagsetningar á námskeiði


Hafa samband

bandvefslosun@gmail.com


bottom of page